
Live from Malawi
2 mars, 2008Í staðinn fyrir að pósta inn óteljandi linka á Afríkuferðina mína ákvað ég skeyta þeim öllum í eitt myndband. Ég er semsagt búin að edita my ass off í dag.
Myndböndin eru frá Malaví ferðinni sem ég fór í fyrir jól á vegum vinnunar. Vildi óska þess ég hefði haft stærra minniskort í vélinni minni, myndböndin eru bara frá fyrstu tveimur dögunum. Hinsvegar tók ég um 800 myndir á vinnuvélina sem bræddi svo úr sér í hitanum og hefur verið úrskurðuð ónýt í kjölfarið.
Ég veit ég hef ekki ennþá skrifað neina ferðasögu frá Malaví og ég reikna ekki með því að gera það. Sumt er bara erfitt að orða. En ef þið náið mér glasi og spyrjið má þá mun ég örugglega fara á flug
Myndbandið er um fimm mínútur… fínt með fyrsta kaffibolla dagsins… samt soldið nauðsynlegt að hafa hljóð.
Váá, Fæ alveg gæsahúð við að horfa á þetta.
Ja hérna. Það er aldeilis!
Well done, Jóa tæknitröll!!!
Sem algjört kórnörd, þá heillaðist ég af kórnum í lokin. Fannst þau æði.
Þú ert hér með ráðin að klippa saman ferðina okkar til Perú og Argentínu
Hvað er FPS´sið á þessu? Er þetta Pal eða NTCS? Er mikil þjöppun á wmv-inu?
Þetta vill fólk vita.
Fyrirgefðu gullið mitt, ég hef bara gleymt að tiltaka þetta.
Þjöppunin er 50 mb, úr 300.
FPS eru 25.
Hvort litgæðin eru Pal eða Ntcs er soldið bara eins og Homblest, gott báðu megin
(nininininiiiii)
vá en æðislegt vídjó! Algjört snilld!
skemmtið ykkur vel í kvöld klifurmýs…
kv. Helen
jamm takk.
Alveg brilliant :0)
Knúsí, Birna
Coen bræður mega fara vara sig á kvikmynda-Jóunni… ég var náttlega stungin af í miðri kviku umræðu ídag. Sá þetta líka. Ótrúlega fasineitíng… nákvæmlega sama efni á Undur jarðar námskeiðinu sem við mæðgurnar fórum á síðustu helgi. Sjitt ég er nörd.
nei alls ekki. Ég er þvílíkt jarðfræðinörd. Safna steinum og sonna. Jarðfræði er eini raunvísindakúrsinn sem ég hef fengið yfir fjóra í … fékk meira að segja átta og yfir. Þetta er bara fáránlega heillandi grein. Þættirnir eru annars á dagsrká út mánuðinn held ég. jibbí
Mad skillz!
Fyrir það fyrsta er ótrúlegt að allir í Afríku virðast vera ofur góðir í að dansa og syngja… og svo auðvitað Jóa fyrir vídjóið… af því að hún kann ekki að dansa… eða syngja… eða hvað?
víst!! Kann það víst … er kunna það sama og geta?