
svar við mega mega getrauninni
26 mars, 2008það voru Einar og Bryndís sem unnu að þessu í sameiningu. Þeir sem vilja hlýða á lagið, sem er btw mega mega gott, ýta á play hér að neðan. Textabrotið byrjar á 3:00.
Born slippy með Underworld

það voru Einar og Bryndís sem unnu að þessu í sameiningu. Þeir sem vilja hlýða á lagið, sem er btw mega mega gott, ýta á play hér að neðan. Textabrotið byrjar á 3:00.
Born slippy með Underworld
Bíddu gat ég þetta ekki á msn í gærkvöldi?
JÚ MEÐ ÞVÍ AÐ SVINDLA!!!! Óljósar reglur my ass…
Reglur eiga að vera skýrar og þær ekki skrifaðar á þann hátt að hægt sé að túlka þær á marga vegu. Þar liggja þín mistök.
Ég gúgglaði þetta ekki heldur fletti þessu upp í annars ágætu safni mínu af góðri tónlist sem ég hef sankað að mér.
Rétturinn er mín megin í þessu máli. Ég er tilbúin að fara með þetta mál alla leið gerist þess þörf, mér leiðist að tapa.
Ég fer fram á að vita hver verðlaunin eru áður en ég sæki þetta mál fyrir hönd mín og Bryndísar.
Gummi minn. Fyrir utan það að “æ ég veit þetta … hvað heitir þetta aftur … oh ég á að vita þetta” er ekki svar þá veit ég ekki til þess að þú hafir birt svarið þitt á síðunni minni, það er, þar sem leikurinn fór fram. Hefur þú séð marga Gettu Betur liða ganga út úr salnum og svara spurningunni á klósettinu og ætlast svo til að fá rétt fyrir það. Eða þá heyrt GB liða segja í hraðaspurningum “ég veit þetta” og þá segir Simmi “núúúúú ok, rétt”.
Jú, jú þú varst fyrstur til að “geta” rétt (geta hér innan gæsalappa þar sem þú gast ekki neitt fyrr en þú kíktir á svarið). En jú ok, ef þú vilt gjörsamlega misþyrma reglunum þér í hag, þá já, þú varst fyrstur til að segja svarið. Þú gast með engu móti munað hvað lagið heitir þannig þú þurftir að fletta því upp í tónlistarsafninu þínu. Til hamingju með sigurinn … hann hlýtur að vera alveg dííííísætur.
En þar sem ekki var búið að tiltaka hver verðlaunin áttu að vera þá tek ég svokallaðann Gumma Jóh á þetta og tilkynni hér með að verðlaunin eru engin
Maður uppsker það sem maður sáir Gummsið mitt.
Þetta er ástæðan fyrir því að Sýslumaður hefur eftirlit með samkeppnum af þessu tagi. Það þarf allt að vera með bókinni.
En þetta var með augljósu GB sniði. Það sem fer úrskeiðis í beinni það stendur.
Ég gat flytjandann strax og viðurkenndi hvernig ég hefði munað nafnið, fyrir það á ég að fá plús enda svindla ég ekki. Ég óska sömuleiðis Einari og Bryndísi til hamingju með sigurinn. Þau eiga hann skilinn.
oh. ég meika þetta ekki. það er hrikalegt að vera dómari í svona, mér er bara illt í hjartanunu mínu. Gummi þú færð plús og allir fá bikar og étla fá mér sjúss.
Mér finnst vont þegar fólki er illt í hjartanu. Afsala mér því verðlaununum og er farinn í útlegð til Nepal. Ekki borða þetta græna í ísskápnum.
hahahahaha. Voða drama.
ég er ótrúlega fúl að hafa ekki rekist á þessa getraun fyrr en nú. þekkti þetta á fyrsta orði og söng með alla færsluna. deeeeeeem.
ég syng nú með flestum færslum á þessu bloggi, ógisslega músikalskt eitthvað