
Ég er fjalltoppur á repeat
31 mars, 2008Þegar maður liggur heima lasinn er lítið annað að gera en að hugsa. Og það er gott að hugsa, eins og sagt var forðum, “I think… therefor I am… uuh, I think”.
Áður en ég segi ykkur söguna af því þegar ég var ein heima í fjóra daga að hugsa með hitavellu þá ýtið þið á play hér að neðan og hlustið á fallega lagið meðan þið lesið.
Þið sem umgangist mig mest vitið að ég er stanslaust með tónlist í eyrunum. Ég fer varla spönn frá rassi án þess að vera með tappa í eyrunum, nokkrum sinnum nærri gengið fyrir bíl.
Svo kynntist ég honum Bonnie ´Prince´ Billy um daginn, prýðistónlistarmanni og tók honum fagnandi inn í minn eigin heim þar sem hljómar lítið annað en tónlist og eigin hugsanir. Lagið sem þið eruð að hlusta á núna er búið að vera á repeat næstum alla helgina enda tónuðu tónarnir vel við hitavellu hugsanirnar, svolítið tregafullir og fallegir mjög. Ég legg sjaldan mikið upp úr því að láta texta tala til mín heldur miklu frekar hljómana og hvernig þeir snerta á tilfinningarnar hverju sinni.
Hugsanir helgarinnar snerust að mestu um ótta, hugrekki og þor. Og í miðjum pælingum fór ég að velta fyrir mér hversu margir koma í raun til dyranna eins og þeir eru klæddir. Hversu margir séu óhræddir við að sýna sig eins og þeir í raun eru í heimi þar sem allt þarf að vera fullkomið. Þegar þarna var komið sögu fór ég að hlusta á textann í laginu hans Billie´s:
If anybody asks u who I am
Just stand up tall look ‘em in the Face and say
I’m that mountain peak up high
I’m that star up in the sky
I made it
I’m the worlds greatest
… og ég hugsaði “vá hvað þetta lag er að tala til mín!” Ég fór á gúggluna góðu að afla mér upplýsinga um texta og sögu lagsins… bjóst við að afhjúpa e-ð guðdómlegt leyndarmál, en nei. Billie er hér að taka cover lag með hverjum haldiði…?? R. Kelly!!! Tónlistarmanni sem ég þoli ekki. Og upprunalega myndbandið er um e-rn boxara á egótrippi.
Ég gat nú ekki annað en hlegið. Hafði ég eytt helginni í gríðardjúpar pælingar um óttann með innblæstri frá R. “I belive I can fly” Kelly.
Ég ákvað að wrappa þessu bara upp með klassískri niðurstöðu: Það er ekkert að óttast nema óttann sjálfan.
Er svo farin að pikka R. Kelly á gítarinn. Maður verður jú að taka því sem lífið fleygir í mann, þó svo það komi frá R. Kelly. Stundum koma góðir hlutir úr þeirri átt sem manni datt aldrei í hug að líta til.
hehehe… já lífið kemur manni á óvart stundum.
hahahahhaha R. Kelly viðbjóður dauðans.. I believe I can touch the sky..
“einhver boxari á egótrippi” heheheh.. I’m the world greatest getur bara átt við einn boxara.. eða er það ekki? hehehe..
..see me running through that open doohoohooooor…
Hahahahaha, þetta er bara eitthvað það fyndnasta sem ég hef lesið lengi.
En þó lokaniðurstaðan sé ósköp falleg og virðist réttmæt í sjálfu sér… þá einfaldlega neita ég að taka við lífsspeki frá sama manni og samdi “Trapped in the Closet” og kastar þvagi á smástelpur. Þú ert greinilega stærri manneskja en ég…
(Fyrir þá sem ekki hafa séð Hip-hoperuna hans Kelly, smellið hér:
http://www.youtube.com/watch?v=FCXlCkY4Y5g )
bwaahaha! Hvaða rugl er þetta… Kelly syngur:
Seven o’clock in the morning
And the rays from the sun wakes me
I’m stretchin’ and yawnin’
In a bed that don’t belong to me
And a voice yells, “Good morning, darlin”, from the bathroom
Then she comes out and kisses me
And to my surprise, she ain’t you
[...]
Here I am, quickly tryin’ to put on my clothes
Searching for my car keys
Tryin’ to get on up out the door
Then she streched her hands in front of it
Said, “You can’t go this way”
Looked at her, like she was crazy
Said, “Woman move out my way”
Said, “I got a wife at home”
She said, “Please don’t go out there”
“Lady, I’ve got to get home”
She said, her husband was comin’ up the stairs
Druslur! Svaka drama…voða hissa að konan sem hann fór upp á var ekki konan hans… hef enga vorkunn.
Vignir ekki linka á svona viðbjóð á síðunni minni
Mér finnst best þegar hann tekur skyndilega upp byssu í miðjum klíðum…
“Right now, I’m sweating like hell
Checks under the bed
Then under the dresser
He looks at the closet
I pull out my Baretta
He walks up to the closet
He goes up to the closet
Now he’s at the closet
Damn he’s opening the closet…”
HAH! Svaka skápadrama… og spennan magnast.
Ouch..ég fékk sting í hjartað við að lesa þetta. Bonnie er uppáhalds tónlistarmaðurinn minn fyrr og síðar, er búin að hafa hann stanslaust í eyrunum sl. 6 ár. Ég efast reyndar stórlega um að R. Kelly hafi samið umrætt lag + texta sjálfur. En fyrst þú ert búin að uppgötva BPB þá mæli ég með lögunum “The Way” og “Hard Life” af plötunni “Master and Everyone”, en platan er reyndar algjör snilld frá upphafi til enda.
And it’s a hard life
For a man with no wife
Baby, it’s a hard life
God makes you live
But without it,
Don’t doubt it
You don’t even have
Your tears to give
Var að tékka á þessu og jújú lag & texti eftir R. Kelly. Skil ekki hvað fær BPB til að taka lag eftir þann sorglega einstakling. Ég á ekki eftir að sofa rótt næstu næturna. Líf mitt er í rúst. Sjitt hvað þetta er fyndið haha… en það skiptir kannski ekki máli hvaðan gott kemur.
(já ég á að vera að læra)
ég held að lagið sé af plötunni hans BPB Ask forgiveness og hann kallar það bara Kelly. Þetta er einhver “cover” plata, ég fíla hana vel. Keytpi hana og I see darkness á sama tíma og er búin að hlusta á þá fyrrnefndu oftar.
og já …. farðu að læra skottan þín
What!? Hlusta minna á “I See A Darkness”? Öss, fyrir utan að vera stórkostlega móðgaður þá er það gersamlega lýtalaus plata… ég meina fá ekki allir gæsahúð í laginu Nomadic Revery (All Around)” þegar þeir góla saman í lokakaflanum?
ekki sár. Stundum er þetta bara svona. En viðurkenni það alveg að Ask forgiveness er slakari plata. Hún hefur samt spilast oftar hjá mér bara af því bara. Ég fæ gæsahúð af Babylon System… dugar það?