
Nostalgía
3 apríl, 2008Ég vil senda sérstakar stuðkveðjur til hennar Söndru minnar með þessu lagi. Varð áðan hugsað til kvöldsins sem við Sandra sátum á hótelsvölunum í Blyntyre í Malaví að semja ræðu sem Sandra átti að flytja fyrir innfædda daginn eftir. Sökum smá öls þá fórum við aðeins of mikið út í væmnina (ég allavega) sem endaði með því að við sungum þetta stórgóða lag fyrir hótelgesti síðla kvölds. (og ég svo í sturtunni, þegar hún fékkst, það sem eftir lifði ferðar)
Takið nú höndum saman við vinnufélagana sitt hvoru megin við ykkur, syngjið með og vaggið ykkur frá hægri til vinstri.
Nú er maður náttúrulega sæmilega kominn með þetta lag á heilann… TAkk fyrir það…
Takk fyrir þetta vinkona, fæ Malaví beint í æð þegar ég heyri þetta lag. Það var ekki nóg með að maður var með laginu á heilanum daginn eftir þetta skemmtilega væmna trúnókvöld okkar heldur gjörsamlega alla ferðina. Vil því tilnefna þetta lag sem trúnó lagið okkar.
B.t.w. á örugglega eftir að syngja þetta fyrir vinnufélagana í kvöld, er komin með á heilann aftur.
KNÚÚÚÚÚÚÚS til baka
:)))