
dísúss!
13 maí, 2008Ég vil fá skoðanir um frammistöðu Júróbandsins á generalprufunnifyrstu æfingu
takið eftir Eitt lag enn sporunum! Svo 1990.
Uppfært - með myndvinnslu (takk Lovísa)
aðeins rórri núna

Ég vil fá skoðanir um frammistöðu Júróbandsins á generalprufunnifyrstu æfingu
takið eftir Eitt lag enn sporunum! Svo 1990.
Uppfært - með myndvinnslu (takk Lovísa)
aðeins rórri núna
ekkert að gerast á sviðinu.. er hvergi hægt að fá bakraddir sem dansa líka???? lífga aðeins upp á þetta??? samanber sænsku beygluna sem nýtir bakraddirnar!
þetta er óttalega dull. En vel sungið.
hata þessi 1990 spor. Var alveg að vonast til að labba-fram-og-smella-fingrum-útí-loftið sporið myndi detta út.. but nooo..
Mér finnst búningarnir dull. Til hvers var fólkið í stífri megrun ef ekki á að sýna neitt? Sammála með smella fingrum út í loftið asnalegheitin.
Mín tillaga; fleiri dansara (fáklædda), rífa neðan af pilsinu hennar regínu og friðrik beran að ofan!
það er bara ekkert úmf í þessu. Sílíkon-Charlotte er þó með þetta ÚMF, maður er alveg vá!
Þó ekki væri bara að hengja Regínu upp á eitt prik eins og þá grísku, something.
Við erum þó ekki verri en Sviss sem ætti bara að skýra lagið sitt Toiletbreak. Tékkland er líka með horror kóríagrífu… e-ð spamsakast þarna í gangi.
Og þegar konan fer að snúa sér í hringi… sjíííí ertu í Disney mynd?
Ég er soldið dissapointed
Mér finnst búningarnir alveg off!! ….kommon er í alvöru ekki til betri stílistar en þetta??!
Vel sungið …..en dansinn jáh, uuu bara flash back einmitt til 1990! Mætti vera miklu meira í gangi á sviðinu.
er ég sú eina sem finnst búningarnir flottir??? bara smart!
Hvernig væri að þau myndu aðeins “shake that ass” eins og Grikkland? http://www.youtube.com/watch?v=rJTbIY14FlI&feature=user
oh ég eeeeelska gríska lagið… finnst það ÆÐI.. topp 3, pottþétt
Flottur söngurinn en það er bara ekkert “sexý” við atriðið, dull búningar og bara ekkert spennandi að gerast á sviðinu. Ætla nú rétt að vona að þau sexi þetta aðeins upp.
þó ekki væri nema einn sleikur á sviðinu.
hér er Sílikon-Charlotte http://www.youtube.com/watch?v=nx5S01zY4×4&feature=user bara til að þið fattið úmfið sem ég er að tala um.
váááá hvað þessi gríska á eftir að vera í stuttum kjól. Verður öró bara í hatti eða e-ð.
btw - þetta var ekki generalprufan, heldur fyrsta æfing
já sry. veit ekki af hverju ég geri þetta
Sísúss sáu þið blaðamannafundinn í gær?
jamm - soldið vandræðalegt þegar FÓ er svona lélegur í ensku, en ég meina, það er víst ekkert hægt að ætlast til að allir séu góðir í ensku, Birgitta komst vel frá því þegar hún keppti.. Regína talar hinsvegar prýðisensku. Let her talk
sá ekki. Link takk.
Ég náði að sinka vídjóin fullkomlega og horfa á þau samtímis. Hvorki lagið né flutningurinn skánaði við það en mér fannst ég allavega duglegur.
Hefðum átt að senda lagið hans Barða. Fer ekki ofan af því…