h1

This is MY motherfucking life

22 maí, 2008

(Ýta á play strax)
Ég verð nú að koma með smá Júróvisjón færslu á þessum dýrðardegi þótt tíminn hjá mér sé naumur. Bara rétt til að peppa upp stemmarann fyrir helgina og fyrir kvöldinu.
Smá upprifjun með mestu krúttsprengju keppninnar síðustu ára.

Verð að segja að undankeppnin á þriðjudaginn var með eindæmum léleg. Var með sjö lönd rétt áfram af tíu og kom þar mest á óvart að Póllandi hafi farið í gegn.
Keppnin í kvöld státar mun betri lögum og ég er spennt að sjá hvernig Íslandi vegnar. Munið svo að púa þegar Charlotte Nilsson stígur á svið og krossleggjum fingur að hún renni á rassinn á sleipa sviðinu. Hún er jú einn helsti óvinur Íslands.

Hér koma svo brot úr öllum vinningslögum frá 1980-2007.

Góða skemmtun í kvöld :)

Rita ummæli