h1

JÖÖÖÖÖÖHHÖÖÖÖÖÖSSSSSSSS!!!!!!!

22 maí, 2008

ó mæ god! ó mæ god! ó mæ god!

VIÐ KOMUMST ÁFRAM. Til hammó mar!

Þetta var fáránlega erfiður riðill, ég átti í mestu vandræðum með að setja niður tíu lönd. Úrslitin komu líka á óvart … Albanía… hvað er það?? Var ekki með nema sex rétt af tíu. Giska svo á að Georgía hafi fengið dómaravalið og Litháen hafi pottó lent í neðsta sæti með ekkert stig. Jú kannski eitt atkvæði frá einhverjum Litháa í sumarfríi í Makedóníu eða e-rs staðar.

Ég spái (í engri sérstakri röð):
Topp fimm – Serbía, Armenía, Grikkland, Úkraína og Svíþjóð
Topp tíu – + Rússland, Ísland, Tyrkland, Frakkland og rokkóperu engillinn sem ég man ekki hvaðan er í augnablikinu.

Held að Úkranía eða Grikkland muni vinna.

Og svo allir saman…. “I spend days in fleeeeh just waiting … Óh”

THIS IS MY LIFE!!! vo -oooóó

og svo uppáhaldslagið mitt – verst hvað hún kom því illa til skila

“come qele, move qele … (blinkí blinkí)”

og svo er kannski rétt að taka fram, að miðað við Murpheys law og mína eigin seinheppni, þá eru vinningslíkur Íslands mjög góðar á laugardaginn þar sem ég mun ekki geta horft á keppnina :)

5 ummæli

  1. Er til endalaust af þessum úkraínsku söngdísum?


  2. hver ertu? … og Qele qele, lagið er frá Armeníu


  3. Nei annars … Armenía tekur þetta.


  4. Ætlaði að kommenta við færsluna með úkraínska krúttinu… virðist ekki skorta krúttin í þessu landi.
    Og ég er bara nobody.


  5. haha, nobody-in eru alltaf besta fólkið… en samt allt í lagi að kynna sig ;)



Rita ummæli