Archive for júní 2nd, 2008

h1

note to self

2 júní, 2008

… þegar maður eldar, á eldavél, þá á ekki að taka pott út úr 200° heitum ofni, leggja á helluna, taka af sér ofnhanskann og grípa aftur í handfangið á pottinum með hanskalausri hendi eftir augnablik. Það mun ekki vera gott.

Í slíkum aðstæðum er best að bregðast við á eftirfarandi máta:
1. æpa
2. blóta alveg óstjórnlega
3. fara inn á bað og stinga hendinni undir kalt vatn
4. nota góðu hendina til að plokka augabrúnirnar meðan sú brennda er í kuldabaði

… svo lærði ég líka í dag að það er betra að hafa munninn lokaðan þegar maður hjólar í gegnum mýflugnaský

svo lengist lærið sem lifrin :)