Archive for júní 13th, 2008

viðbót
13 júní, 2008
starfsmaður mínútunnar
13 júní, 2008ég hef formlega hlotið titilinn “gagnslausasti starfsmaður veraldar”.
í dag mætti ég klukkan hálf tólf í vinnuna… bara af því það var svo gott að knúsa sængina í morgun. Síðan ég mætti er ég búin að spjalla og drekka kaffi og síðustu klst-ina er ég búin að teikna myndir handa vinum mínum á msn. Teiknaði eina handa Beggu af henni og familíunni í útileigu, eina handa Söndru af henni og Steinari í göngutúr, eina handa Heiðu af henni eldrauðri í sólbaði og bjórflugu handa Dodda. Svo vildi Heiða líka fá bjórflugu þannig ég þurfti að teikna nýja… algert madhouse hérna.
Til að toppa frammistöðu mína þá fer ég snemma úr vinnunni í dag til að drekka bjór!
við sjáum dæmi um framleiðni mína í dag.

góða helgi allir
…. (ég verð klædd eins og býfluga á morgun btw)


