Ég heyri gegnum gólfið mitt að það er agalega spennandi fótboltaleikur í gangi… það hefur heyrst nokkuð oft í nágranna mínum NAAAUUUUUJJH! og ÚÚÚÚÚÚH!
Það er gott hann skemmtir sér.
Archive for júní 19th, 2008

NAUUUUUJJJH!
19 júní, 2008
hólí mólí
19 júní, 2008Ég var e-ð extra pirruð í morgun og skildi eiginlega ekkert í því. Svo fann ég eftir morgunmat að ég var e-ð hálf slöpp, kalt og með hausverk. Ég nottla elevate-aði viðbúnaðarstigið upp í eldrauðan, hóf að saxa niður engiferrót og er búin að drekka fjóra bolla af heitu vatni með engiferi í dag. Ég skal ekki verða veik. Ég hef hvorki löngun né nennu til þess.
Svo veit ég ekkert hvort engiferið gerir e-ð ekki … líður samt aðeins betur… er að spá í að fara að klifra á kvöld
Annars horfði ég á heilar fjórar mínútur af fótboltaleik í gærkvöldi. Það gerðist e-ð gasalega ægilegt á vellinum akkúrat þegar ég kíkti á skjáinn. Einhver var felldur og þá kom annar og sparkaði boltanum e-ð og allir urðu svaka reiðir. Það var enginn sætur á skjánum þannig ég skipti bara yfir á Omega.
Svo barst mér nýjasti Sigurrósar diskurinn í hendur í morgun. Svakalega varð ég kát. Mér finnst diskurinn góður – Inní mér syngur vitleysingur, Góðan daginn og Festival gripu athygli mína mest svona fyrst um sinn. Svo hlusta ég betur í kvöld þegar ég get hlustað betur á textana. Annars finnst mér skondið að þegar ég hlusta á lagið Íllgresi þá finnst mér lagið á köflum svipa til akústik útgáfunnar af Bryan Adams laginu Heaven … en ég er líka í engifer vímu. (má heyra á 3:00 -(…baby ur all that I want… trallalala))
Annað markvert hefur ekki átt sér stað í lífi mínu síðastliðinn sólarhring