h1

will u have my baby

23 júní, 2008

Í dag er ég búin að vera lasin heima eins og e-ð chump. Svaf í e-a 16 klst og er alveg frá af e-rju drasli. Þannig ég er búin að drepa tímann með því að horfa á Friends og spjalla við Dodda á msninu. Nú er netið hjá mér frekar lélegt og getur msn-ið mitt gert vini mína sturlaða. Ég helst illa inni og ekki allt sem sagt er skilar sér. Stundum koma villumeldingar og stundum ekki. Í dag þegar ég spjallaði við Dodda þá fékk ég ekki öll skilaboðin í heild sinni þannig samtalið varð soldið spes um tíma.

Svona leit samtalið út í mínum glugga:

Jóa says:
æ nenniru að koma hingað og bæta á heita vatnið mitt og skera meira engifer handa mér
Jóa says:
var ég ekki að ræða e-ð við þig um barneignir á laugardag
doddi says:
jú, ég held það

Svona leit samtalið út í glugganum hans Dodda:
Jóa says:
æ nenniru að koma hingað og bæta á heita vatnið mitt og skera meira engifer handa mér
doddi says:
vantar þig eitthvað?
Jóa says:
var ég ekki að ræða e-ð við þig um barneignir á laugardag
doddi says:
framhleypni
-

Svona verður misskilningurinn til… Doddi var alveg fíraður upp og ætlaði að redda málunum… mig langaði bara í meira engifer.

híhí

8 ummæli

  1. HAHAHAHA SNILLD!!!…kannast við svona misskilning þegar ég var með gömlu tölvuna mína. Hélt að netið væri í þvílíku ólagi en þá var það bara netkortið í tölvunni (gaf alltaf þau skilaboð inná milli að það væri slökkt á netinu eða e-ð svoleiðis). Ég myndi tékka á því hvort netkortið í tölvunni þinni sé eitthvað vafasamt. Gæti reddað málunum að fá þér bara utanáliggjandi netkort.


  2. Æ krúsan mín. Vona að þú sért hressari í dag. Mér finnst ömurlegast í heimi að vera veikur þegar veðrið er svona gott. Minnir mig á mína verstu æskuminningu ever. Við mamma vorum búnar að sauma á mig öskudagsbúning (rokkari) og ég var heima með æluna. Sat inni í búningnum og grét allan daginn.
    knús í krús


  3. Sendi kveðjur um bata.
    Doddi er greinilega maðurinn til að leita til, sama hvort verkefnið er stórt eða lítið ;-)


  4. ef einhver er fíraður upp í þessu samtali ert það þú, kæra jóhanna.


  5. Gott að eiga svona vin sem hægt er að leita til með hvað sem er ;)


  6. líka, þvílík gen!! barnið yrði guðdómlegt. ég segi, kýlið á það doddi og jóa!


  7. Hahahaha! I always had a feeling about you two ;)


  8. mig langar ekki í börn alveg akkúrat núna… má ég ekki bara taka Dodda að mér og hugsa um hann sem barnið mitt.



Rita ummæli