
svona líða dagarnir
26 júní, 2008á miðvikudaginn í síðustu viku hjólaði ég á vegg
á föstudaginn sprakk á afturdekkinu á hjólinu mínu
á laugardaginn hélt ég að ég væri að labba í gegnum hurð á Apótekinu en var í raun að labba í gegnum glerlausa hurð þannig ég rak lappirnar í falsinn á henni og flaug inn á Apótekið með öskri… fékk stóran marblett á sköflunginn
á sunnudaginn velti ég fyrir mér af hverju tannburstar eru settur í gjörsamlega óopnanlegar umbúðir meðan ljósaperur eru seldar í örþunnum pappaboxum
á mánudaginn var ég lasin
í gær fann ég silfurlitað belti í skúffunni minni sem ég var búin að gleyma að ég átti en ég er einmitt búin að þræða verslanir bæjarins síðustu vikur í leit að silfurlituðu belti sem ég sem sagt átti nú þegar
í dag er ég með einhverskonar eilífðarsinadrátt í hægra lærinu
í dag ætlaði ég ýta útidyrahurðinni á Vibbanum upp með mjöðminni þar sem ég var með fullar hendur og um leið og fleygði mér á hana fann ég gegnum sársaukann í mjaðmabeininu að hurðin var harðlæst
í dag tók ég heyrnartóls-tappana úr eyrunum og lagði þá frá mér beint ofan í kaffibollann
í dag er góður dagur
Mér finnst þú samt fín sko…
ég hef lent í þessu sama með heyrnatólin í kaffið. algert áfall.
Er ég einn um að hið ágæta lag Bjarnastaðabeljurnar komi til hugar?
Það gerir ekkert til,
það gerir ekkert til,
hún kemur um miðnæturs bil.
(Ég reyndar ímyndaði mér: Hún skrapp bara á klósettið).
vá nááááákvæmlega með ljósaperur vs. tannbursta.. ég er alltaf komin með keðjusögina á helvítis tannburstahylkið…