h1

Hvað er verið að brasa?

29 júní, 2008

Ég ákvað að vera heima á föstudagskvöldið, bara rétt að ná mér í smá djammpásu. Ætlaði að sinna ýmsum verkum sem setið hafa á hakanum en endaði á því að eyða kvöldinu í að spila þennan leik. Akkúrat núna er ég föst í borði númer 68 og ætli ég muni nokkuð eiga líf þar til ég næ að klára öll borðin.

Í gær fór ég svo á Argentínu með stelpunum að bjóða Auði velkomna heim. Fékk mér nautalund og maturinn var að sjálfsögðu góður en ég var ekkert blown away. Og ég varð svo sár. Ég elska gott kjöt og góða steik, með því betra sem ég fæ, en þetta var ekkert æðislegt. Svo finnst mér algjört rán að rukka 1150 krónur fyrir glas Trivento chardonnay. Rán!!! Flaskan kostar held ég um þúsund kall í Ríkinu. Algjörlega fáránlegt. Fengum samt góða þjónustu.

Talandi um þjónustu þá fór ég á Brons um síðustu helgi. Ég veit það er erfitt að fá góða þjóna en mér finnst að veitingahúsaeigendur ættu að leggja upp úr því að þjálfa fólkið sitt almennilega. Þegar Lovísa spurði þjóninn hvað e-ð pasta með “ragout” væri var svarið sem hún fékk frá þjóninum “sko þetta er eiginlega bara svona fansí orð sem er sett á seðilinn.” Þegar við spurðum hvort þetta væri aðferð, áferð, krydd eða sósa var svarið “Ég veit það ekki”.
Ég pantaði mér e-rn kanadískan humar sem kom ofsoðinn og kaldur. Humarinn var líka heill, klipptur í miðjunni, og ég fékk hníf og gaffal til að éta þetta. Fór út svöng og pirruð. Ömurleg þjónusta og þessi eini réttur glataður. Lovísa og Sandra voru samt ánægðar með sinn mat.

Annars er ég búin að hanga svolítið á English Pub undanfarið og fíla það bara vel. Allir hressir og í bananastuði. Fór þangað í gær. Svo á Apótekið en gafst upp fljótlega þar. Labbaði þá með Mezzaforte í eyrunum upp á Ölstofuna þar sem ég hitti Höska og Kalla og Höski gaf mér túnfisksamloku sem hann átti eftir pikk nikk á tónleikunum í Laugardalnum. Svo fórum við á Ellefuna. Fékk far þangað með stráki sem heitir Haukur, voða fínn, hann var á reiðhjóli og reiddi mig niðrettir. Mér fannst það voðalega gaman. Svo dansaði ég á Ellefunni við tóna Maus, Muse, Pixies og annarra snillinga.
Þegar ég kom heim voru táslurnar mínar svartar af drullu og ég að kafna úr gleði.

Svo er brúðkaup um næstu helgi þar sem ég tek með mér kjól og hvítt og tjald og prímus því þetta er útileigubrúðkaup!! Fátt betra en gott hlöðuball.

Voðalega varð þetta löng færsla… ætli mér leiðist?

One comment

  1. hei, ekki nóg með það, heldur bar hún franska orðið ragoût (ragú) fram upp á ensku rag-out!!! RAG ÁT!!! þvílíkt hallærislegt hehehehehe



Rita ummæli