h1

hann Doddi djóker

4 júlí, 2008

Hann Doddi vinur minn er óttalegur djóker. Við fórum saman úr vinnunni í dag. Áður en við fórum setti hann hommaklám í gang á tölvu eins vinnufélaga okkar og svo flýtti hann klukkunni á kaffistofunni um klst. Svo lögðum við af stað í erindagjörðir á Laugaveginum.
Í Eymundsson ræddi hann mjög hneykslaður við einn starfsmanninn um af hverju starfsfólkið væri ekki allt með nafnspjöld.
Í Mál og Menningu tók Doddi upp Séð og heyrt blað, benti á forsíðugreinina og sagði frekar æstur við afgreiðslustúlkuna “er e-ð varið í þessa grein því ég vil ekkert kaupa þetta blað ef þetta er leiðinleg grein.”

Þegar ég kom heim beið mín póstur frá Landsbankanum. Þegar ég opnaði bréfið kom þetta í ljós.

Já hann Doddi… hann djókar

Rita ummæli