h1

Elskist og margfaldist

7 júlí, 2008

Ég fór í skemmtilegasta brúðkaup í manna minnum um helgina. Þeir sem til þekkja vita að ég er óttalega meir pía, klökkna og tárast yfir ótrúlegustu hlutum og er fáránlega hrifnæm. Ég tók samt þá ákvörðun að gráta ekki í þessu brúðkaupi því ég vissi að ef ég myndi fara af stað þá yrði ég örugglega vælandi allt kvöldið.

Baráttan við tárin byrjaði strax í athöfninni sem var ótrúlega falleg og brúðurin var ekkert að hjálpa með því að vera sjálf grátandi af gleði. Veislan var svo haldin í félagsheimilinu í Þingborg rétt austan við Selfoss en brúðkaupsgestirnir höfðu slegið þar upp tjaldbúðum og tilbúnir í næturlangt tjútt. Eftir matinn héldu allir út á hól þar sem við tók brekkusöngur og brenna, þar á eftir var slegið upp sveittu balli og dansaði ég í 3 tíma streit. Svo mikil voru lætin að ég var komin á háhest á Dodda og sprengdar voru tvær confetti sprengjur. Þegar ballinu lauk slóum við upp öðrum brekkusöng í sólarupprásinni. Ég fór snemma í háttinn klukkan fimm og var smá svekkt þegar ég fattaði að ég missti af heita potta partý sem byrjaði um sex leytið og stóð til níu eða tíu um morguninn.

Ég komst þó grátlaus í gegnum þetta. Pabbi brúðarinnar fór þó alveg með mig… aldrei heyrt jafn fallega og einlæga ræðu og kom frá honum. Augun fylltust af tárum og neðri vörin titraði. En ég harkaði þó af mér. Pabbi Aubjargar talaði af einlægni um lífið og ástina og eins og Doddi sagði við mig “vá þessi ræða bara breytti lífi mínu.”
Guðni Ágústsson, frændi brúðarinnar, steig líka í pontu og fór með þrælfyndna ræðu. Hann gaf brúðgumanum meðal annars þetta heilræði: Ef hún snýr rassgatinu í þig þegar þið farið að sofa, þá snýrðu henni við, þá tekur betra við.
Endaði hann svo ræðuna á þessum orðum: Elskist og margfaldist. Sem mér fannst ótrúlega fallegt.

Þakka brúðhjónunum og öllum öðrum fyrir frábæran dag.


the happy couple


brekkusöngur hinn fyrri

3 ummæli

  1. ég þakka stórgóða helgi. hún verður í minnum höfð.


  2. Djöfull er gaman í þessu sumarfríi hjá þér! Mig langar líka í frí!


  3. oh en fallegt. ég þekkti einmitt Auðbjörgu hérna í denn, hún var með mér í ritráði ef ég man rétt (nota bene – skólablað f.su)



Rita ummæli