h1

Hinn Skínandi Stígur

8 ágúst, 2008

Ég hef einhverja undarlega áráttu að taka ekki upp úr ferðatöskum fyrr en margir dagar eru liðnir frá því ég kom heim úr ferðalaginu. Í raun tek ég ekki upp úr töskunum, það bara týnist upp úr þeim næstu dagana… ef mig vantar snyrtidótið þá næ ég í það… svo set ég í vél og þá fer skítuga dótið upp úr töskunni… svo vantar mig að lesa og þá sæki ég bókina og svo koll af kolli. Á endanum er ekkert eftir í töskunni og þá set ég hana aftur upp á skáp.

Holið mitt er immit fullt af ferðadóti akkúrat núna og ég klofa yfir töskurnar til að komast leiðar minnar. Hafði þó rænu á því að setja matinn inn í skáp… ætlaði að spara rosa tíma með því að setja bara allan matarpokann inn í einu. Lyfti honum í efstu hilluna og rak mig um leið í mjólkurfernuna sem helltist yfir allan ísskápinn. Það er aldrei gaman að hella niður… en það er ömurlegt að hella niður mjólk… ógó lykt af þessu.

Ég er allavega komin heim úr bústaðnum. 2-3 pottaferðir á dag er akkúrat það sem maður þarf til að slaka á. Ég var reyndar með langan lista yfir fjöll sem ég ætlaði að klífa meðan ég var í sumó en endaði á því að fríka út við að leggja stíg úr bústó og út í pott. Það var verk sem tók mig þrjá daga… pabbi sótti steina upp í gil og ég gróf holur og lagði steinana, alls 16 stykki, í holurnar og þétti að með grús. Stíginn skýrði ég Hinn Skínandi Stígur og hann má sjá hér….

Síðan ef þið þurfið að grilla í rigningu þá er þetta ein leið til þess…

Síðan fór ég í útiklifur um daginn og það var ólýsanlega gaman. Fékk að leiða og allt sem þýðir að maður klifrar klettinn beran og kemur reipinu fyrir. Þannig maður er bara tryggður hluta úr leiðinni og því ekki gott að detta. Ég datt ekki og fékk vææænan adrenalínskammt. Rosa stuð. Hér er ég rétt að byrja á einni leið en leiðin endar rétt fyrir neðan bjargbrúnina.

annað er ekki að frétta í bili :)

4 ummæli

  1. Kannast við þetta með töskurnar eftir ferðalög, á það til að vera að týna upp úr þeim í nokkrar vikur á eftir.

    En þú er orðin ekkert smá góð í klifrinu, man eftir þegar þú talaðir um að hafa klifrað upp smá ísklump einhvern tímann og þig svimaði.


  2. nei mig svimaði ekki… ég komst bara fjóra metra upp af 20 og hneig svo niður af orkuleysi… var látin síga niður eins og hrísgrjónapoki… not my finest moment en það var samt voða gaman :)


  3. Vá! Flottur stígur! *bows*
    Mig svimar nú bara við að horfa á þessar myndir. Var einhvern tímann dregin í fossasig í Húsafelli og fæ enn martraðir! You go girl.
    Svo máttu alveg fara að láta sjá þig aftur í salsanu, fer ekki hver að verða síðastur að læra eitthvað af viti fyrir þessa ferð?
    Knús.


  4. jú það er reyndar rétt… en þú veist að þegar maður er í glasi þá getur maður gert svo margt sem maður getur annars ekki… og ég reikna nú með að það hverfi nokkrir kokteilar ofan í okkur í Ríó. En sendu mér næst þegar e-ð er að gerast… ég þyrfti aðeins að komast á dansgólfið.



Rita ummæli