
Tekíla og útihátíð
18 ágúst, 2008Eftir ógurlegt fyllerí á föstudag vaknaði ég á laugardeginum hálf buguð yfir því að þurfa að halda í útileigu sama dag. Kvöldið áður drakk ég ótæpilega (tekíla included)… gargaði á Dodda “Farðu bara. Farðu bara og njóttu lífsins!” þegar hann sagði mér að taxinn væri kominn. Hann vildi nú meina ég hefði verið í dramakasti en ég vil meina ég hafi bara verið hress. Hringdi samt í hann stuttu seinna til að kalla hann hóru og lék GPS rödd í símann sem mér fannst alveg agalega fyndið. Fór svo að kjökra inni á ellefunni meðan ég talaði við Auðbjörgu… það var e-ð ægilega fallegt móment í gangi og ég var bara komin á barinn að biðja um tissjú. Tók svo túrbótrúnó við Ara áður en ég labbaði heim… á ská.
Þið sem hittuð mig ekki misstuð af miklu… það gerist svona einu sinni á 2 ára fresti að ég verði svona full.
En í útileigu fór ég og sú útileiga var snilld. Heljarins grillveisla. Svo tók við æsispennandi brennóleikur… í miðju rifrildi í miðjum brennó-leik heyrist í Gurrý: Fólk virðist eitthvað vera að rugla saman reglunum í Sto og Brennó!
Sem mér fannst svo sætt… því ekkert okkar hefur spilað brennó í e-r fimmtán – tuttugu ár… það hlupu bara allir út um allt.
Eftir þann hamagang var kveitk í báli og gítararnir fóru á loft. Held við höfum sungið og brennt kommóður og annað nytsamlegt frá klukkan 11 og til fjögur um nóttina. Átti svo skemmtilegt samtal við einn vin hans Gústa hennar Lovísu.
Vinur Gústa: Ha?? Áttu ekki bíl??!
Ég: Nei ég bara hjóla út um allt
Vinur Gústa: Uhhhh… ertu svona “týpa”… ertu grænmetisæta?
held hann hafi dregið þá ályktun að ég væri “illa vinstri græn” af því ég hjóla út um allt hahaha.
Svo fór ég að sofa í tjaldsvítunni minni. Þegar ég var búin að koma mér huggulega fyrir og farin að svífa í draumalandið þá datt yfir meðallagi stór könguló af tjaldloftinu og á nefbroddinn á mér. Svo lá hún bara þarna við hliðin á mér á koddanum. Ég hélt þetta væri hrossafluga en nei… ég teygði mig yfir í næsta tjaldherbergi og lét tjaldfélagann fjarlægja hana af koddanum.
Svo var hún mætt aftur um morguninn. Tók meira að segja sama múvið. Klifraði upp á tjaldkúluna mína og svo “thump” fleygði sér niður á dýnuna mína meðan ég var að pakka.
Hörkufjör. Takk fyrir mig og þakka öllum fyrir samveruna yfir þessa stórfínu helgi.


takk f túrbótrúnó á ellefunni!
ég er mjög upp með mér og snortinn að hafa orðið vitni af þessum tvíæringi…
ég man ekki í detail hvað ég var að segja við þig en ég man að ég var aaaalveg að meina það. Lovjú babe.
hahahah – vinir Gústa sjá ekki fyrir sér líf án bíla, bíladellukallar með eindæmum heheheheh..
djöfull hefði ég viljað sjá þig á þessu fylleríi – gá hvað þú hefðir sagt við mig
hahah
haha… þú fékkst sms útgáfuna