h1

mon dieu!

22 ágúst, 2008

Ég hef nú bara aldrei á allri minni ævi… jesús minn dúddi á styttu! Þetta var svaaaaakalegur leikur… það sem er lagt á mig veika manneskjuna. Ég fór úr jákvæðum líkamshita á batavegi upp á 37,6° og upp í 38,1° að leik loknum. Var kannski aðeins of æst, með ægihraðan hjartslátt og þambaði kaffið ótæpilega. Var komin hér út á mitt stofugólf hoppandi og organdi og gleymdi því í smástund að ég væri lasin. Enda ekki annað hægt….

við erum komin í úrslit á Ólympíuleikunum!

Íris var hjá mér og hún felldi tár af gleði.

Hjartans hamingjuóskir til landsliðsins og allra þeirra sem að þessum góða árangri koma.

Svo er bara leikurinn um gullið á sunnudag… ég ætla að hóa mínu fólki saman niður á English Pub… best að koma bara beint af djamminu og halda gleðinni áfram :)

Markmið næsta sólarhrings… drekka engiferte í massavís, svefn og gufa og snýta vel svo ég lagist af þessum viðbjóði.

Og fyrir þá sem eru e-ð efins um þennan leik á sunnudag þá minni ég á sigur Íslendinga á Monsieurs Mon Dieu árið 2007. Syngjum svo öll saman…..

og svo smá svona til að gleðja okkur stelpurnar*

*Höfundur áskilur sér rétt til að hlutgera karlmenn ef hún er í stuði til þess

2 ummæli

  1. iiii sendi einmitt samstarfskonu minni þessa mynd í dag …..af Alexander þ.e.! Þetta er hinn eiginlegi McHottie!! sleeeef :þ


  2. ahhhh ávaxtabakkinn :)



Rita ummæli