Archive for nóvember, 2008

ég var að spá?
27 nóvember, 2008
viljum við kosningar?
24 nóvember, 2008Í ljósi þess að á borgarafundi segist fólk tala fyrir hönd þjóðarinnar allrar með að vilja kosningar og sjá alla ríkisstjórnina burt vil ég segja:
Ég vil ekki kosningar
ég styð mótmæli, ég styð borgarafundi, ég styð að fólk tjái skoðanir sínar, en ég styð ekki að aðrir segi mér hvaða skoðanir ég hef.
Ég sé ekki ástæðu til að slátra öllum sauðahópnum bara því fólki reynist erfitt að benda á svörtu sauðina.

smá pólitík
21 nóvember, 2008Ef það er einhvern tímann tími til að hlýða á dúettinn Plató þá væri það þessa dagana… svei mér þá ég er að spá í að gerast bara kommúnisti.

Hvað er að frétta?
19 nóvember, 2008bara nokkrir fréttapunktar um sjálfa mig á tímum bloggleysis.
… ég hef sett persónulegt met í búbbluböðum þar sem mér hefur tekist að klára einn líter af freyðisápu á innan við mánuði
… ég setti einnig persónulegt met í þvottaleti sem endaði svo að á sunnudaginn þvoði ég sex vélar – semsagt – beisiklí öll fötin sem ég á voru orðin skítug
… ég hef bara komist tvisvar sinnum að klifra síðan bankarnir féllu og ég er að verða geðveik
… ég fór á fyllerí um helgina og gerði ekkert af mér
… ég er illa leikin af kreppunni þessa dagana en sé fram á að svartsýniskasti verði lokið upp úr helgi – að því gefnu að það ekki dynji enn einar hörmungar fréttirnar yfir mann til viðbótar.
… ég er ekki hætt að elska ykkur það er bara svo miklu að snúast í þessa dagana
… ég verð hinsvegar á útstáelsi bæði á fimmtudag og föstudag ef e-r vill hafa uppi á mér

Djazzercise í atvinnuleysi
13 nóvember, 2008Í ljósi þess að ég er búin að missa vinnuna ætla ég að taka upp á því að gerast Djazzercise leiðbeinandi. Tímar munu fram á Mána alla virka daga í hádeginu, glasn-stretts buxur eru skilyrði og ég mun ekki vera í síðra stuði en leiðbeinandinn á þessu sýningarmyndbandi.
Hlakka til að sjá ykkur í Mána Class.

brjót
4 nóvember, 2008Mér finnst að glasaframleiðendur eigi að hafa einskonar “shatter information” á vörum sínum. Það er … á glasaumbúðunum væri listi sem sýnir dreifni glerbrota komi til þess að glasið detti í gólfið. Þannig væri hægt að sjá líkurnar á því hversu langt glerbrotin dreifast á parketi, plastparketi eða flísum. Til dæmis hefði ég ekki keypt Ikea glösin sem ég á hefði ég vitað hversu svakalega þau splundrast þegar þau brotna. Eitt glerbrotið endaði í alvöru inni á baði en verknaðurinn var framinn við stofuborðið.
Svo komst ég loksins í klifur í gær. Loksins loksins. Hef ekki farið í mánuð og búin að tapa niður öllum krafti… en hann kemur aftur, áhuginn er allavega til staðar. Ég stefni á að fara á laugardaginn aftur og þið hringið bara í mig ef þið viljið koma með og prófa.
Átti líka frábæra helgi í sumarbústaðnum. Öll familían, mínus mágkonan, fór saman og pabbi minn og bróðir fóru á rjúpu meðan ég og mamma pössuðum litla frænda. Ég las ævintýrið um Skilaboðaskjóðuna alls sjö sinnum þessa helgi og lagði mig þrisvar sinnum