Archive for desember, 2008

h1

blóð og vöðvar

30 desember, 2008

já já já. Asskolli átti ég góð jól. Fékk þessa fínu pakka og æðislegan mat og allt hreinlega dásamlegt.
Hinsvegar setti smá strik í reikninginn að ég tognaði frekar illa í klifrinu á föstudaginn sem gerði það að verkum djammhelgin ógurlega sem var plönuð breyttist í Lotr maraþon heima í sófa.

Þannig ég fór í nudd til sadistans míns í morgun sem var ægilega gott/vont. Tognunin var nefnilega komin úr hálsinum og farin að teygja sig niður í rófubein og aftanverð lærin… ég ákvað að stoppa þetta áður en þetta næði niður í tær og færi að koma upp aftur á framanverðum líkamanum. Nuddarinn hamaðist á vöðvunum og alltaf þegar hann fékk “já” við spurningunni “aum hér?” þá tók hann því sem “já nenniru að berja mig þarna í svona 20 mín”. En ég er aðeins betri – soldið aum – en vonandi verð ég eins og nýslegin Evra á morgun.

Síðan fór ég í gær og sótti um að verða blóðgjafi. Þetta eru engin smá inntökupróf þarna blóðbankanum. Maður er yfirheyrður í bak og fyrir og ég lenti í hálfgerðum vandræðum með að muna sjúkrasöguna mína. Þurfti að hringja símtöl til að komast að sannleikanum um sjálfa mig og leið eins og ég væri í munnlegu prófi að rifja upp allar bólusetningarnar sem ég hef fengið. Í flestum tilfellum þykir fólki til dæmis sæmilega til þess koma að maður hafi farið alla leið til Afríku – en í Blóðbankanum þykir það eiginlega bara ekkert merkilegt – það er eiginlega bara frekar glatað og stórhættulegt gagnvart heilbrigðu blóði. Ég stóðst samt fyrri hluta inntökuprófsins og fékk að gefa blóð í prufu sem verður svo skimuð og skönnuð og sé hún í lagi þá má ég koma og gefa alveg dópíu af blóði. Ég er að vona að ég sé AB blóðflokkur – það væri ægilega töff. Svo gaman að vera einstakur í þessum heimi.

Síðan frétti ég að það er hægt að fá 0.9 lítra bjór í nýlenduvöruverslun hemma og valda (kaffihús) á 800 kall þannig maður verður að drífa sig að smakka þann bjór. Svo er ég komin á þá skoðun að í Ríkinu á Snorrabraut er að finna mjög ljúffengar pítsur bakaðar á staðnum.

Svo er ég bara ægilega kát og funheit bara. Það fer að líða að áramótapistli og ég er að spá í að taka bara massa trúnó í þeim pistli… það er allavega nóg af bjór í kælinum til að ýta undir það.

Hasta la pasta

h1

jeij!

24 desember, 2008

Ógiisslega gleðileg jól skiljiði! Njótið dagsins :)

h1

viðbót…

23 desember, 2008

hvað er málið með límið sem sér um að halda borðunum saman í rúllu! Rólegir á tonnatakinu … það er hálf rúllan ónothæf því hún er klesst í einhvern riiiisa límmiða! WTF!!!

En á öðrum nótum….

jólagjafir – checked
innpökkun – checked
jólatré – checked
þrífa – checked
jólabóla – checked
bjór – checked
last christmas með Gogga Mikks – í spilaranum – checked
hreint á rúminu – checked
lax – checked

allt klárt … jólin mega koma – BRING IT ON!

h1

Hneisa!

22 desember, 2008

Það var ekki til súkkulaði ísinn frá Ekta ítölskum í Bónus. Ég varð frekar brjáluð og lýsi yfir miklum vonbrigðum með bæði Bónus og Ekta ítalska ísfyrirtækið og í raun bara súkkulaði líka!
Þetta var það eina sem ég ætlaði að leyfa mér að spreða peningum í fyrir jólin og vonbriðgðin urðu gríðarleg þegar mér varð ljóst að ekki var til súkkulaði tegundin.

Þetta setti mig alveg út af laginu. Aðrir hlutir sem pirra mig þessa dagana eru eftirfarandi:

*Ilmvatnsauglýsingar – það þurfa allir að tala svo sensúal í þessum auglýsingum að það skilst ekki orð af því sem þetta lið er að segja.

*N1 auglýsingin – stöndum vörð um Ísland með því að versla við N1 … dónt fatt it.

*Hitabylgja 2 dögum fyrir jól

*”Röðin” á Kaffibarnum

*Fólk sem gefur ekki stefnuljós á leið út úr hringtorgi

*Framsóknarflokkurinn

*Stöðurafmagn – alveg komið gott af því

*Ógeðslega pirrandi límband sem klessist á allt og skemmir alla fínu jólapakkana mína

* og eins og alltaf – the one and only pirringskveikja – lagið Just the way you are með Billy Joel!

Annars er ég alveg þrusugóð bara :)

h1

Forgangsröðun

18 desember, 2008

ókídókí.

nú er ég að skrifa ritgerð um e-rjar skvísur í þriðja heiminum í Afríku og skort á þátttöku þeirra í lýðræðisþróuninni þar á bæ. Núh…. úti snjóar og klukkan er korter í jól. Ég lít svo á málið að þar sem Afríka er ekkert að fara taka nein stór stökk í átt að skilvirku lýðræði á næstu dögum og það er svo rosa kósý snjókoma og ég var að taka lagköku úr frystinum þá getur ritgerðin beðið meðan ég fer að jólast.

Þannig … Afríka þú verður bara að bíða eftir lausn vandamála þinna þar sem ég farin að pakka inn jólagjöfum og hlusta á Wham :)

I just want to liiiiiiiiiive!

h1

Kæri Jóli

15 desember, 2008

Jæja. Í gær tók ég mig til og jólaskreytti Mánann minn. Ég komst í svo mikið jólaskap við bökunarilminn heima hjá mömmu að ég taldi mér ekki lengur til setunnar boðið. Dró upp skrautið og nú hafa jólin formlega ælt yfir heimilið mitt.

Í fyrra skrifaði ég þessa jólafærslu þar sem ég rifjaði meðal annars upp bréfaskriftir sem ég átti við jólasveinana sem ég greinilega dýrkaði meira en nokkuð annað. Ég renndi aftur í gegnum bréfin mín í gær mér til mikillar skemmtunar. Mest fannst mér þó fyndið að ég hef greinilega verið með e-ð speglunar-syndrom því ég skrifaði nánast alla tölustafi öfuga, eða speglaða, og einnig J-in. Man líka að ég skrifaði alltaf með röngum halla – semsagt skriftin hallaði til vinstri en ekki hægri. Mar er svo spes.

Allavega. Valdi tvö bréf til jólasveinanna til að birta hér. Það fyrra finnst mér sætt því ég átti einu sinni hamstur sem hét Pollý og greinilegt að ég vildi ekki að hún færi varhluta af jólunum.

Kæri jólasveinn

Viltu gefa hömstrunum tvem á gólfinu eithvað í skóin. (bara ostbita eða eithvað)

Mig grunar að hinn hamsturinn hafi verið Hannes eða Dollý, hamstrar vinkvenna minna, sem voru stundum hjá mér í næturpössun.

Seinna bréfið fannst mér ægilega fyndið líka því ég man hvað mér var það mikið í mun að allir jólasveinarnir fengju gjafir. Stundum kom það fyrir að þeir gleymdu að taka gjafirnar (örugglega þau skiptin sem pabbi sá um að gefa í skóinn) og þegar það kom fyrir skrifaði ég iðulega harðorð bréf enda ekki sérlega sátt við að skipulaginu væri riðlað til með þessum hætti.

Hæ hann stekjastaur gleymdi gjöfinni sinni í gær. Getur þú látið hann fá sitt og þú tekur þitt og allir fá eithvað.
Jóhanna

Allavega… einu sinni kjáni ávallt kjáni :)

kertasnikir_386646

h1

ooh ooh óó o o oooóó

13 desember, 2008

einhverra hluta vegna þá er ég ástfangin af þessu lagi – bæði laginu og dansinum.

og finnst því SNL grínið að þessu alveg fáránlega fyndið

ok nú fer ég að læra

h1

my oh my

13 desember, 2008

þar sem ég hef ekki bloggað neitt af viti í lengri tíma þá skulum við bara stikla á stóru og taka fyrir nokkra helstu viðburðina.

Mig langar að byrja á að óska nágrannanum mínum, sem ég deili svefnherbergisvegg með, til hamingju með nýju kærustuna sína. Hún virðist voða kát með nágrannann minn ef marka má stunurnar og öll “jáh! – in” sem upp úr henni koma. Ég er voðalega kát fyrir hönd nágranna míns og er búin að setja “eyrnatappar” á innkaupalistann.

Núh. Hafi það farið framhjá e-m þá er ég búin að missa vinnuna mína og er því ekki lengur blaðamaður. Eins og hjá svo mörgum þá hafa síðustu rúmu tveir mánuðir verið mjög erfiðir. Við Vibbarnir vissum frá því Kaupþing féll að allar líkur væru á að málin færu eins og þau fóru þar sem Exista var okkar eigandi og áttu þeir um 24% hlut í Kaupþing. Síðustu 2 mánuðurnir á Vibbanum eru þeir erfiðustu sem ég hef átt á öllum mínum vinnuferli. Álagið og óvissan var að gera út af við okkur og mjög erfitt að vinna við slíkar aðstæður vitandi að gjaldþrot er á næsta leyti. Maður óttast vitanlega um afkomu sína enda er ekkert grín að standa uppi tekjulaus á tímum sem þessum.
Ég átti líka svolítið erfitt með að sjá á eftir Helgarblaðinu þar sem ég hef verið með frá upphafi útgáfu þess og hef litið svolítið á það sem barnið mitt. Viðskiptablaðið kemur þó enn út með nýju eignarhaldi og ég óska þeim sem að því standa alls hins besta :)

Sem betur fer á ég góða vini sem voru duglegir að hvetja mig áfram meðan á þessu stóð: þegar mig langaði helst bara að skila lyklunum að íbúðinni og sofa næstu fimm árin þangað til þetta væri bara búið. Það var gott að eiga góða að þegar maður þurfti að gráta eða velta sér upp úr sjálfsvorkun og vonleysi. Þegar á reynir sér maður hverjir standa alltaf við bakið á manni :)

Ég vona að ekkert ykkar þurfi að díla við þetta en komi til þess þá bara hringið þið og fáið knús, kaffi og ráðgjöf.

Annars er planið mitt að gerast námsmey. Ég er svo klár kaka að ég á smá varasjóð sem fleytir mér í nokkra mánuði. Svo vona ég að ábyrgðarsjóður launa taki við sér sem fyrst – en ég þarf semsagt að gera kröfu í þrotabú fyrir uppsagnarfrestinum, orlofi og e-u fleiru – en við erum að reikna með að sá pennsi komi ekki fyrr en í sumar sökum álags þar á bæ.

Eeeeeníhú. Ég stefni semsagt á framhaldsnám en til þess að komast í það þarf ég að klára BA ritgerðina og sit sveitt við það verk núna svo ég nái skilunum um miðjan jánúar.

Þannig ég sé jafnvel fram á að eiga mér líf eftir áramót. Geti sinnt vinum og áhugamálum og þarf ekki sífellt að hugsa um vinnuna og sinna e-u henni tengdri. Sem væri dásamleg tilbreyting.

Niðurstaðan í þessu langa máli er sú að ég er bara nokkuð kát :) Ekki alveg jafn kát og nýja kærasta nágrannans en svona næstum því.

Þannig núna er ég búin að setja ykkur inn í hvað hefur verið að gerast hjá mér síðustu mánuði þannig núna eru allir up to date og allt að gerast.

Ljúkum þessu með hugljúfu jólalagi… ég því miður fann ekki uncensoraða útgáfu en þar sem bíbbið kemur er sagt dónaorð sem handahreyfingar leikaranna ættu gefa vísbendingu um hvað er. Gleðilega aðventu :)

h1

juhúú

11 desember, 2008

Fann hátíðarkarlinn minn frá því í fyrra :)

h1

Sumarið 2008

6 desember, 2008

Löngu fyrir bankahrun byrjaði ég að klippa saman myndband frá síðasta sumri… ætlað mér og öðrum til skemmtunar. 2 mánuðum eftir að ég byrjaði á því komst ég loksins í að klára þetta. Það eru svona smá hnökrar á þessu þar sem ég er enn að læra á forritið – eins og svarti langi hljóðlausi halinn í endann sem ég gat ekki klippt af án þess að riðla öllu til – en þolinmæðina þraut og ég nennti ekki að snurfusa meir og skellti þessu á netið.

Þannig ég óska ykkur gleðilegra jóla með sumarkveðju og minni á að maí er handan við hornið en eins og allir vita þá hefst sumarið ávallt þann 6. maí :)

rock on

… og já … verðið eiginlega að hafa hljóð – miklu meira skemmtó