Öpdeit
Orðin 30 ára. Fékk 9 fyrir BA. Orðin stjórnmálafræðingur (döll). Hætt að reykja. 2 vikur eftir af klifurbanni. 4 bjórar í ísskápnum – óásættanlegt magn. Gengur bara vel í nýju vinnunni. Lífið er gott.
Annars skrópaði ég í útskriftina mína í gær
bara nennti ómögulega að mæta í þetta. Í staðinn fór familjen upp í bústað, ekki sænska elektróbandið Familjen, eins og Ari vinur hélt og var mjög spenntur, heldur bara mamma og pabbi og liðið. Það var heldur betur kósý og fínt. Ég er orðin þolanlega góð í ökklanum og fór í könnunarferð handar ár þar sem ég hef hug á að koma mér upp mínu prívat klifursvæði. Var að kanna gæði bergsins og möguleika á leiðum. Var orðin ægilega spennt því ég var búin að spotta eina girnilega leið. Var búin að finna góð byrjunartök sem reyndar láu samsíða þannig maður þarf að setja líkamsþungann í öfuga átt til að ná að koma sér af stað. Gerði það bara … en um leið reif ég annað gripið úr klettinum. Þannig bergið er kannski heldur laust í sér … það er amk bara lítill ör-pinch eftir af þessu taki, úbbs. En ég á enn eftir að kanna annað hot spot ofar í gilinu sem ég bind miklar vonir við.
Útivistarbarbí – nú með eigið klifursvæði.

Svo náði ég að setja niður alla stafina í fyrsta leik í Scrabble og gaf það mér 80 stig og gríðarlegt forskot í leiknum. Mamma vann samt. Ég var ekki kát. Pabbi flúði út í pott.

Annars er ég svo ferlega löt við að skrifa inn á þetta blogg að ég er að spá í að svissa yfir í myndablogg. Þannig í staðinn fyrir að skrifa e-ð raus sem enginn nennir að lesa þá blogga ég með myndum sem enginn nennir að skoða. Ekki einu sinni viss um að ég nenni að skrifa e-ð með þessum myndum … þið lesið bara út úr þessu það sem þið viljið. En ein mynd á dag af athöfnum dagsins skal það vera
Prófum idda. Svo tölum við bara saman í haust.